Arnarnesvegur (411), Reykjanesbraut ¿ Fífuhvammsvegur, hönnun
Vegagerðin óskar eftir tilboði í for- og verkhönnun Arnarnesvegar (411), frá mislægum gatnamótum við Reykjanesbraut að gatnamótum Arnarnesvegar og Fífuhvammsvegar, um 1,8 km. Einnig skal for- og verkhanna fern gatnamót ásamt fimm undirgöngum og göngustígum. Forhanna skal staðsetningu á einni göngubrú.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.
Verkhönnun og skilamati skal lokið fyrir 22. desember 2008.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með þriðjudeginum 13. maí 2008. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 18. júní 2008, og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag og lesið upp hverjir hafa skilað inn tilboðum.
Síðari opnunarfundur verður þriðjudaginn 24. júní 2008 kl. 14:15 þar sem birtar verða einkunnir bjóðenda úr hæfnismati og verðtilboð opnuð.
Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Tilboð opnuð 18. júní 2008.
Bjóðendur í stafrófsröð |
Almenna verkfræðistofan, Reykjavík |
Fjölhönnun ehf., Reykjavík |
Hnit hf., Reykjavík |
Línuhönnun hf., Reykjavík |
Mannvit, Reykjavík |
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen, Reykjavík |